Yfirlýsing Úrvinnslusjóðs og Sorpu

vegna endurvinnslu á drykkjarfernum

06. jún. 2023

Úrvinnslusjóður og SORPA ætla í sameiningu að fá fullvissu fyrir því að sá endurvinnsluaðili sem mun héðan í frá taka við fernum frá SORPU skili þeim árangri sem til er ætlast. Stefnt er að því að fernurnar verði sendar til fyrirtækisins Fiskeby Board í Svíþjóð.
Þetta er gert í kjölfar þess að í ljós kom að Smurfit Kappa, endurvinnsluaðili á pappír frá SORPU, getur ekki endurunnið fernur í sínum vinnsluferlum. SORPA ákvað í kjölfarið að láta Stena Recycling, móttökuaðila sinn á endurvinnsluefnum í Svíþjóð, flokka fernur úr blönduðum pappírsstraum SORPU til að tryggja að fernurnar verði endurunnar.
Í kjölfar fundar með Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í dag var ákveðið að Úrvinnslusjóður og SORPA muni tilnefna óháðan aðila til að fylgjast með framkvæmdinni og staðfesta fullnægjandi endurvinnslu.
Úrvinnslusjóður hefur krafið aðra þjónustuaðila, Terra og Íslenska gámafélagið, sem hafa safnað fernum til endurvinnslu, um staðfestingu á því að fullnægjandi endurvinnsla hafi farið fram erlendis. Gert er ráð fyrir að upplýsingar berist á næstu dögum.
Að gefnu tilefni vill Úrvinnslusjóður einnig taka fram að sjóðurinn hefur nýlega endurskoðað skilmála gagnvart þjónustuaðilum sjóðsins í þeim tilgangi að treysta rekjanleika og vitneskju um endanlega ráðstöfun þess úrgangs sem fellur undir sjóðinn og til að efla gagnsæi í starfsemi sjóðsins.