Veiðarfæri úr gerviefnum

Úrvinnslusjóður og Landssamband íslenskra útvegsmanna hafa gert samning um ráðstafanir til að tryggja úrvinnslu úrgangs vegna veiðarfæra úr gerviefnum. LÍÚ mun samkvæmt samningnum annast úrvinnsluna og um leið er nýtt heimild til þess að undanþiggja veiðarfæri úr gerviefnum frá því að bera úrvinnslugjald, sbr. lög um úrvinnslugjald.

Markmið samningsins er að koma í veg fyrir mengun af völdum úrgangsveiðarfæra úr gerviefnum. Það er gert með því að leita leiða til að auka skil, draga úr magni úrgangs sem fer til endanlegrar förgunar, örva og hvetja til endurnýtingar þar sem það er hagkvæmt.

Áætlað er að veiðarfæraúrgangur nemi allt að 1.100 tonnum á ári. Stefnt er að því að árið 2006 fari minnst 45% alls veiðarfæraúrgangs sem fellur til á landinu til endurvinnslu. Hlutfallið verði 50% árið 2007 og 60% árið 2008.

Landssamband íslenskra útvegsmanna hóf um áramótin móttöku á endurnýtanlegum veiðarfæraúrgangi og er tekið á móti honum frá úrgangshafa án endurgjalds í móttökustöð á Grandagarði, Reykjavík, alla virka daga kl. 8-16.

Veiðarfæraúrgangurinn skal vera þurr (rakainnihald að hámarki 6%) og flokkaður eftir veiðarfærategund. Veiðarfæraúrgangurinn skal vera laus við alla aðskotahluti, aðskotaefni og óhreinindi, s.s. sand, olíu, fisk og sjávargróður og laus við alla aukahluti, s.s. flot, blý, gúmmí, keðjur og víra.

Panta skal móttöku með a.m.k. 24 klst. fyrirvara ef skila á meira magni en sem nemur einu tonni, annars með a.m.k. 4 klst. fyrirvara. Við pöntun skal tilgreina áætlað magn og um hvers konar veiðarfæraúrgang er að ræða. Við móttöku skulu móttökuaðili og úrgangshafi eða fulltrúi hans fylla út móttökuskýrslu þar sem fram koma upplýsingar um magn, uppruna og gerð veiðarfæraúrgangsins. Báðir aðilar undirrita skýrsluna til staðfestingar og fær úrgangshafi afrit af henni. Leiki vafi á að veiðarfæraúrgangurinn uppfylli skilyrði til móttöku, þ.e. um rakainnihald, flokkun, aðskotahluti og aðskotaefni, getur móttökuaðili hafnað móttöku eða krafið úrgangshafa um greiðslu til að standa straum að kostnaði við nauðsynlega meðhöndlun til að gera úrganginn endurnýtanlegan.

Að uppfylltum settum skilyrðum geta erlendir aðilar eða umboðsmenn þeirra skilað veiðarfæraúrgangi úr gerviefnunum frá erlendum skipum til móttökustöðvarinnar gegn gjaldi.



Senda grein


Efri Valmynd


Þetta vefsvæði byggir á Eplica