Pappi og pappír
Pappa- og pappírsumbúðir
Úrvinnslugjald er lagt á hvert kíló af umbúðum gerðum úr pappa, pappír og plasti. Gjaldið er lagt á hvort sem umbúðirnar eru einar og sér eða utan um vörur sem fluttar eru til landsins.
Úrvinnslugjaldið er notað til að greiða fyrir meðhöndlun umbúðanna og endurnýtingu eftir að þær hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum.
Nánari upplýsingar fyrir framleiðendur og innflytjendur
Gögn fyrir þjónustu- og ráðstöfunaraðila:
Hér að er finna ýmis gögn og upplýsingar fyrir þá sem annast þjónustu fyrir Úrvinnslusjóð vegna endurnýtingar umbúða úr bylgjupappa, slétts pappa og pappírs:
Skilmálar fyrir þjónustu- og ráðstöfunaraðila
Umsóknareyðublöð og samningsform
Greiðslur:
Allar upplýsingar um greiðslur Úrvinnslusjóðs eru í skilagreinaformi. Til þess að tryggja rétta verðskrá er nauðsynlegt að sækja nýjasta formið áður en reikningur er gerður.
Upplýsingar um greiðslur og skilagreinaform með innbyggðum verðskrám er að finna hér.
