Olíuvörur

Hinn 15. mars 1999 var byrjað að leggja spilliefnagjald á smurolíu. Á sama tíma tók gildi þjónustusamningur við olíufélögin þrjú þar sem þau taka að sér að sjá um og reka búnað til að taka á móti allri úrgangsolíu á landinu, flytja olíuna frá öllum helstu skilaaðilum, meðhöndla hana í móttökustöð og koma henni til eyðingar eða endurnýtingar.

Um leið gekk í gildi yfirlýsing um samstarf olíufélaganna um meðferð svartolíuúrgangs frá skipum. Samkvæmt henni skuldbinda þau sig til að sjá um og reka búnað til að taka á móti svartolíuúrgangi frá íslenskum skipum sem nota svartolíu, gegn eðlilegu gjaldi, flytja, meðhöndla og koma honum til eyðingar. Þessi yfirlýsing sem var staðfest af umhverfisráðherra felur í sér að svartolía var undanþegin spilliefnagjaldi og er einnig undanþegin úrvinnslugjaldi.

Svartolía
Með hugtakinu svartolía er átt við brennsluolíu (MFO 30, sbr. ISO 8217/1987). Sú svartolía sem hér um ræðir er léttasta gerð slíkrar olíu og er ætluð til brennslu í kötlum og á díselvélum stærri skipa. Í svartolíu eru óhreinindi og vatn sem ganga úr henni við síun og skiljun.

Eins og fram kemur hér að ofan annast olíufélögin þennan vöruflokk og er hann undanþeginn úrvinnslugjaldi og þar með afskiptum Úrvinnslusjóðs hvað fjárhagslegt uppgjör varðar. Samkvæmt samningi er miðað við að 1% af innfluttri svartolíu skili sér sem úrgangur.

Önnur olía en brennsluolía:
Undir þennan vöruflokk falla smurolía, smurfeiti, ryðvarnarolía, aðrar þykkar olíur og blöndur, svo sem vökvakerfisolíur og íblöndunarefni fyrir smurolíur.

Úrvinnslugjald er lagt á hvert kg olíu.

Sjá nánar um fjárhæðir í lögum um úrvinnslugjald

Senda grein


Efri Valmynd


Þetta vefsvæði byggir á Eplica