Spurningar og svör 3-15

3. Kostar eitthvað að skila rafhlöðum til úrvinnslu?

Nei

svar4


4. Hvert á að skila rafhlöðum til úrvinnslu?

Á söfnunarstöðvar sveitarfélaga, þ.m.t. Sorpu. Bensínstöðvar taka einnig á móti rafhlöðum og hægt er að setja þær í endurvinnslutunnur fyrir flokkað heimilissorp frá Gámaþjónustunni.

svar_1_72p



5. Hversu miklu magni af rafhlöðum er skilað til úrvinnslu á Íslandi árlega?

Því miður er allt of litlu magni af rafhlöðum skilað árlega. Af þeim 161,5 tonnum rafhlaðna sem flutt voru inn til landsins á árinu 2005 var aðeins rúmlega 37 tonnum skilað til úrvinnslu. Þetta eru ekki nema 21% af öllum seldum rafhlöðum hér á landi. Þetta þýðir að hvorki meira né minna en rúm 124 tonn af rafhlöðum, 79%, hafa farið beint í ruslið og því verið urðuð með öðru sorpi.

svar5



6. Hvað verður um rafhlöðurnar þegar þeim hefur verið skilað?

Frá bensínstöðvunum fara þær í söfnunarstöð viðkomandi sveitarfélags og þaðan taka fagaðilar við þeim til flokkunar eftir innihaldi og möguleikum til endurnýtingar. Öllum rafhlöðum er fargað eða eytt á viðurkenndan hátt hjá aðilum sem hafa starfsleyfi til slíkrar meðhöndlunar. Sem dæmi um endurnýtingu eru rafhlöður með spilliefnum brenndar við háan hita hjá viðurkenndum eyðingaraðila í Danmörku, Kommunekemi í Nyborg á Fjóni. Hitinn sem myndast við brennslu á ónýtum rafhlöðum frá Íslandi er notaður bæði til að framleiða rafmagn og hita vatn sem er notað til húshitunar hjá sveitarfélaginu Nyborg.

svar6



7. Hversu stórt hlutfall af þeim rafhlöðum sem er skilað hér á landi inniheldur spilliefni?

Rafhlöður með spilliefnum voru 7% af heildarmagni þeirra rafhlaðna sem skilað var árið 2005. Þetta eru kvikasilfursrafhlöður, nikkel-kadmíumrafhlöður og litíum-rafhlöður.

svar7



8. Hvað er gert við afganginn, þ.e. brúnkolsrafhlöðurnar sem innihalda ekki spilliefni?

Brúnkolsrafhlöðurnar eru settar í tunnur, merktar og urðaðar á urðunarstað Sorpu fyrir sértækan úrgang.

svar8



9. Hvaða áhrif hefur það á okkar eigin heilsu og afkomenda okkar ef rafhlöðum er ekki skilað til úrvinnslu heldur hent beint í ruslið?

Rafhlöður eru spilliefni og geta verið skaðlegar heilsu og umhverfi. Ef hættulegu efnin sem fyrirfinnast í sumum rafhlöðum sleppa út í náttúruna getur það haft alvarlegar afleiðingar. Það sem vitað er um þungmálmana blý, kvikasilfur og kadmíum er að þeir eru allir eitraðir og hafa áhrif á umhverfið og þar með heilbrigði dýra og manna. Þessir þungmálmar eiga það einnig sameiginlegt að safnast upp í líkamanum. Í stað þess að skiljast út úr líkamanum í formi þvags, hægða eða svita, verða þeir eftir í líkama manna og dýra og safnast upp. Kvikasilfur getur valdið skaða á miðtaugakerfi og nýrum. Það safnast fyrir í vöðvum og taugakerfi. Kadmíum getur valdið nýrnaskaða og vansköpun á beinagrind. Blý safnast upp í lifur, nýrum og milta. Aukið magn af blýi í heila barna hefur í för með sér minnkandi getu til að læra og náttblindu. Krónísk blýeitrun veldur blóðleysi og truflunum í taugakerfi.

svar9

10. Hversu margar ólíkar gerðir rafhlaðna eru til á markaðnum?

Það eru til þúsundir ólíkra gerða rafhlaðna en hægt er að flokka þær með mismunandi hætti.


Flokkaðar eftir notkun eru þessar rafhlöður algengastar:
Rafhlöður sem notaðar eru í heimilis- og leiktæki eins og fjarstýringar, vasaljós, myndavélar, rafknúin leikföng o.fl. Þessar rafhlöður geta bæði verið einnota og endurhlaðanlegar.
Hnapparafhlöður sem notaðar eru t.d. í heyrnartæki, úr og myndavélar.
Endurhlaðanlegar rafhlöður sem t.d. eru notaðar í iðnaði (borvélar o.þ.h.).

Séu rafhlöður flokkaðar eftir innihaldi líta flokkarnir þannig út:
Brúnkolsrafhlöður: Hættulausar rafhlöður, innihalda ekki spilliefni og eru yfirleitt einnota.
Kvikasilfursrafhlöður: Mikið af hnapparafhlöðum er t.d. með kvikasilfri.
Nikkel-kadmíumrafhlöður: Endurhlaðanlegar rafhlöður, t.d. rafhlöður í borvélum og slíkum tækjum.
Litíum-rafhlöður: Endurhlaðanlegar rafhlöður, t.d. rafhlöður í myndavélar og björgunarljós, einnig er litíum notað í nokkrar gerðir hnapparafhlaðna.

Loks má svo einfaldlega skipta rafhlöðum upp í einnota og endurhlaðanlegar rafhlöður.

svar10

 

11. Hvað innihalda rafhlöðurnar? Hver eru hættulegustu efnin?

Rafhlöður geta innihaldið mörg ólík efni til þess að búa til rafmagn, t.d. mangandíoxíð, járn, sink, kol, klór, tin, nikkel, kopar, salmíak og brennisteinssýru (sem er það sama og rafhlöðusýra). Alkalírafhlöður og brúnkolsrafhlöður innihalda fyrst og fremst sink og járn. Í flestum hnapparafhlöðum er kvikasilfur, sem er mjög eitraður þungmálmur. Einnig eru til rafhlöður sem innihalda kadmíum og blý, sem eru hættulegir þungmálmar. Í kadmíumrafhlöðum er ennfremur nikkel. Valkostur við hinar hættulegu nikkelkadmíumrafhlöður eru nikkel-málmhýdridrafhlöður, sem eru alveg lausar við efni sem eru skaðleg umhverfinu. Sumar vistvænar rafhlöður innihalda einnig litíum.

svar11 

 

 

12. Hvernig hafa rafhlöðurnar þróast, eru þær orðnar vistvænni en áður?

Já, þróunin er í rétta átt og rafhlöður sem valda umhverfinu litlum skaða verða æ algengari. Áður fyrr innihéldu bæði alkalírafhlöður og brúnkolsrafhlöður kvikasilfur, en kvikasilfrið hvarf alveg úr þessum gerðum rafhlaðna um 1990. Þess vegna eru þær góður valkostur með tilliti til umhverfisins ef ekki þarf að nota endurhlaðanlegar rafhlöður. Nikkel-málmhýdridrafhlöður eða litíumrafhlöður eru góður valkostur ef rafhlöðurnar eiga að vera endurhlaðanlegar.

svar12 

 

 

13. Alkalírafhlöður og brúnkolsrafhlöður eiga að vera nánast lausar við kvikasilfur. Þýðir það að það megi henda þeim í ruslið?

Nei, það á að skila öllum rafhlöðum til úrvinnslu! Maður veit nefnilega aldrei, stundum getur meira að segja verið erfitt fyrir sérfræðinga að þekkja í sundur rafhlöður sem eru skaðlegar umhverfinu og þær sem eru það ekki. Auk þess eru til brúnkolsrafhlöður sem innihalda kvikasilfur. Alkalískar hnapparafhlöður innihalda einnig kvikasilfur, þótt í smáum mæli sé.

svar13 

 

 

14. Hver er munurinn á endurnýtingu, endurvinnslu og endurnotkun?

Endurnýting (e. recovery): Hvers konar nýting úrgangs, önnur en endurnotkun, þ.m.t. endurvinnsla, orkuvinnsla og landmótun.

Endurvinnsla (e. recycling): Endurframleiðsla úr úrgangi til upprunalegra eða annarra nota, þar með talin lífræn endurvinnsla en ekki orkuvinnsla.

Endurnotkun (e. reuse): Endurtekin notkun úrgangs í óbreyttri mynd.

svar14 

 

 

15. Hvar get ég leitað mér nánari upplýsinga um rafhlöður?

Í Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu, er að finna ítarlegan texta um rafhlöður – smelltu hér: http://is.wikipedia.org/wiki/Rafhla%C3%B0a. Þar er einnig vísað á nokkra fróðlega tengla með efni sem tengist rafhlöðum:

Electrochemistry Encyclopedia NONRECHARGEABLE BATTERIES:
http://electrochem.cwru.edu/ed/encycl/art-b02-batt-nonr.htm

Battery Technologies: http://www.freeenergynews.com/Directory/Battery/index.html

Exide Technologies, a typical manufacturer of batteries for industrial and other applications:
http://www.exide.com/

Batteries in a Portable World - A Handbook on rechargeable batteries for non-engineers (Hefur ítarlegan „spurt og svarað“ hluta um hleðslurafhlöður): http://www.buchmann.ca/default.asp

Battery Timeline (Saga rafhlaðna, orku og tengdrar tækni): http://www.mpoweruk.com/history.htm


svar15 

 


 

logo_oll_72p

Senda grein


Efri Valmynd


Þetta vefsvæði byggir á Eplica