Málning og litarefni
Í þessum vöruflokki er að finna málningu, litarefni og prentliti sem hafa það sameiginlegt að innihalda hættuleg efni, oftast lífræn leysiefni, sem gerir það að verkum að vöruafgangar flokkast sem spilliefni. Málning sem inniheldur lífræn leysiefni eða önnur hættuleg efni verður hér eftir nefnd olíumálning til aðgreiningar frá plastmálningu sem er vatnsþynnanleg eða inniheldur ekki hættuleg efni.
Úrvinnslugjald er lagt á hvert kg af málningu.
Prentlitir:
Prentlitir eru gerðir upp sérstaklega. Úrvinnslugjald er lagt á hvert kg af prentlitum.
