SKREF 2 - ÚTBORGUN SKILAGJALDS

Fara þarf með skilavottorðið á næstu skoðunarstöð Aðalskoðunar og Frumherja eða Umferðarstofu og óska eftir afskráningu til úrvinnslu. Aðeins skráður eigandi getur afskráð ökutæki sitt, eða aðili með skriflegt umboð frá eiganda. Þar getur eigandi fengið skilagjaldið greitt á staðnum gegn framvísun persónuskilríkja. Þá er athugað hvort gjöld tengd ökutækinu séu í skilum, s.s. úrvinnslugjald, bifreiðagjald, þungaskattur, vörugjöld o.fl., en áfallin gjöld eru jöfnuð á móti skilagjaldi og mismunurinn greiddur.

Ef annar en eigandi skilar inn afskráningarbeiðni í umboði eiganda, eða eigandi er lögaðili, er hægt að óska eftir því að skilagjald verði greitt inn á tilgreindan reikning eiganda. Þetta á einnig við ef afskráningarbeiðni er póstsend ásamt skilavottorði til Umferðarstofu. Ef skilagjald er ekki greitt út við móttöku afskráningarbeiðninnar eignast eigandi inneign sem hægt er að nálgast hjá innheimtumönnum ríkissjóðs.

Athuga ber að ef afskráning hefur farið fram á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2003, en ökutækinu ekki verið fargað, má skila bifreið inn eins og lýst er í skrefi 1 og fá svo leiðréttingu á afskráningunni hjá Umferðarstofu eða skoðunarstöð.

Senda grein


Efri Valmynd


Þetta vefsvæði byggir á Eplica