SKREF 1 - BIFREIÐ SKILAÐ
Eigandi, eða aðili með skriflegt umboð frá eiganda, fer með ökutækið á næstu söfnunarstöð. Mikilvægt er að hafa með sér skráningarskírteini eða skoðunarvottorð til að auðveldara sé að auðkenna bifreiðina. Nauðsynlegt er að koma með skilríki. Ef bifreiðin er með ökumæli vegna þungaskatts þarf eigandi að taka niður stöðuna og skila til álestraraðila.
Á söfnunarstöð er tekið á móti ökutækinu og þar er gefið út skilavottorð til staðfestingar á að bifreiðinni hafi verið skilað til viðurkennds aðila. Sá sem skilar ökutækinu staðfestir með undirritun að það sé vilji eigandans að farga því. Ef annar en eigandi skilar ökutæki er nauðsynlegt að hann hafi til þess skriflegt umboð eiganda.
Ákveðnar lágmarkskröfur gilda um ástand bifreiðarinnar þegar henni er skilað. Grunnkrafan er sú að yfirbyggingu og grind sé skilað og að hægt sé að bera kennsl á ökutækið með verksmiðjunúmeri þess. Verksmiðjunúmerið er jafnan á yfirbyggingunni, á grindinni eða á plötu sem fest er á mælaborð. Yfirbygging og grind mega vera skemmd og aðra hluti ökutækisins má vanta. Þannig má vera búið að fjarlægja rúður, innréttingu, hjólabúnað, ljósabúnað, rafbúnað, vél og þess háttar.
Skref 2 - Útborgun skilagjalds
