Tilkynningar
Breytingar á úrvinnslugjaldi 1. janúar 2011
Með samþykkt laga nr. 158/2010 er tóku gildi þann 1. janúar 2011 urðu breytingar á úrvinnslugjaldi á umbúðum úr pappa og pappír, úr 12 kr/kg í 15 kr/kg, umbúðum úr plasti og heyrúlluplasti úr 5 kr/kg í 12 kr/kg.
Einnig var úrvinnslugjald hækkað á eftirtalda vöruflokka; olíuvörur, lífræn leysiefni, halógeneruð efnasambönd, isócýanöt, málningu, blýsýrurafgeymar, vörur í ljósmyndaiðnaði og hjólbarðar.
Hægt er að sjá álagt úrvinnslugjald nánar í skjali er ber heitið lög um úrvinnslugjald nr. 162/2002 í heild sinni með viðaukum. Sjá má úrvinnslugjald fyrir hvern vöruflokk samkvæmt tollnúmeri í samtektarskjali.
Ef misræmi er á milli upphæðar úrvinnslugjalds eða textans á þessari síðu og laganna sem birt eru í Stjórnartíðindum þá eru það lögin sem gilda.
