Verklag
Úrvinnslugjald er notað til að greiða fyrir meðferð flokkaðs úrgangs á söfnunarstöðvum, flutning, endurnýtingu, endurvinnslu eða förgun með eða án skilagjalds. Samið verður um verkþætti á grundvelli útboða eða verksamninga.
Söfnunarstöð er staður og aðstaða þar sem tekið er við úrgangi frá almenningi og/eða smærri fyrirtækjum. Þaðan fer úrgangurinn til endurnotkunar og endurnýtingar eða er fluttur til móttökustöðva..
Móttökustöð er staður og aðstaða þar sem tekið er við úrgangi til geymslu til lengri eða skemmri tíma, til umhleðslu, flokkunar eða annarrar meðhöndlunar. Þaðan fer úrgangurinn til förgunar, endurnýtingar, endurnotkunar eða honum er fargað á staðnum.

