Hugmyndafræðin

Hráefni og orka til vöruframleiðslu eru oft takmarkaðar auðlindir sem ber að fara eins sparlega með og kostur er.

Við öflun hráefna og orku er oft gengið á náttúruleg gæði og sama gildir um úrgang sem verður til við vörunotkun og þegar vörur hafa þjónað tilgangi sínum.

Hin síðari ár hefur verið lögð æ meiri áhersla á að vöruhringrásin sé eins lokuð og kostur er og að notkun hráefnis og orku sé í lágmarki auk þess að sem minnst falli úr hringrásinni í formi úrgangs sem verður að farga.

Úrvinnslusjóður vinnur að því að sem minnst falli út úr vöruhringrásinni í formi úrgangs sem þarf að farga. Hann reynir með hagrænum hvötum að stuðla að sem mestri endurnýtingu og endurvinnslu.

hringras



Senda grein