Skilagreinaform - val og tenglar inn á skjöl

Að velja skilagrein

Gefnar eru út nýjar útgáfur skilagreina þegar breytingar verða á greiðslum, endurgjaldi og flutningsjöfnun. Dagsetning ræður því hvaða skilagrein skal nota í hvert sinn. Þjónustuaðili getur þurft að skipta upp færslum frá einu tímabili á tvær skilagreinar til að  til að aðlaga þær verðbreytingum.

Flutningsjöfnun fylgir söfnunarfærslum og því þurfa þær að vera í þeirri skilagrein sem inniheldur rétta flutningsjöfnun fyrir tímabilið.

Endurgjaldið fylgir ráðstöfun og þarf að skrá ráðstöfunarfærslur skilagrein sem nær yfir rétta tímabilið.

Framsal milli þjónustuaðila

Þegar þjónustuaðilar eiga viðskipti sín á milli með úrvinnslugjaldsskylt efni er það gert með framsali þar sem upphaflegi söfnunaraðilinn gerir grein fyrir söfnun frá úrgangshöfum og ráðstafar til þess sem ráðstafar efninu endanlega.

Leiðbeiningar um framsal hér.

Færslur endurvinnsluefnis milli vöruflokka

Stundum innifela vigtartölur fleiri en einn flokk þannig að nauðsynlegt reynist að færa magn á milli flokka. Bæði getur þetta gerst t.d. þegar plastumbúðum er safnað með pappaumbúðum í sama gámi og einnig þegar plastumbúðum er safnað undir flokknum Annað plast en ráðstafað úr öllum flokkum eftir nánari flokkun. Þá þarf að færa milli flokka í skilagrein.

Leiðbeiningar um tilfærslu milli vöruflokka hér.


Nálgast má skilagreinaform hér.

Varðandi spurningar um skilagreinar, hafið samband við Írisi Gunnarsdóttur  iris hjá urvinnslusjodur.is eða í síma 417 4706



Senda grein


Efri Valmynd


Þetta vefsvæði byggir á Eplica