Samskipti við þjónustuaðila
Hér verða samskipti okkar við ykkur sem eruð að vinna með skilagreinarnar en allar tilkynningar varðandi gjöld og greiðslur verða á forsíðunni. Sem sagt aldrei sama efnið á báðum stöðum, svo þið skuluð venja ykkur á að opna á forsíðu, skoða tilkynningarnar og flytja ykkur svo á svæði fyrir þjónustuaðila og kíkja á þennan reit.
11. september 2012 er sett inn ný útgáfa af skilagrein sem er töluvert breytt. Jafnframt var þjónustuaðilum sendur tölvupóstur með útskýringum og kynningu á helstu breytingum. Í þessari skilagrein eru ný einingaverð fyrir pappa- og pappírsumbúðir ásamt breytingum á flutningsjöfnun fyrir umbúðir og gildir hvorutveggja frá 1. ágúst 2012.
1. ágúst 2012 er sett inn ný skilagrein með breyttum verðum fyrir PAP umbúðir og nýjum flutningagreiðslum vegna umbúða úr pappa og plasti (ekki heyrúlluplast). Athugið að nota eldri útgáfu skilagreinar þegar söfnun og/eða ráðstöfun á sér stað fyrir 1. ágúst.
16. júlí 2012 er sett inn ný útgáfa af skilagrein, óbreytt nema að nokkur einingaverð fyrir spilliefni hafa breyst. Það er því óþarfi að skipta skilagreinum í tímabil fyrir og eftir 1. júlí nema þegar um spilliefni er að ræða. Aðrir nota nýjustu útgáfu.
15.09.2011 er sett inn ný útgáfa af skilagrein sem gildir frá 1. maí 2011. Þessi skilagrein er lítið breytt en smán saman er verið að taka efni úr skilagreininni og setja undir Eyðublöð eða Leiðbeiningar á vefnum til að létta á vinnslu og geymslu skilagreinanna. Hafið samband við iris hja urvinnslusjodur.is ef þið hafið ábendingar eða spurningar um skilagreinarnar og því sem þeim tengist.
