Rafhlöður
Gerður er greinarmunur á rafhlöðum sem eru einnota og endurhlaðanlegum rafgeymum.
Rafhlöður og rafgeymar eru ýmist fluttir inn einir og sér eða sem hluti af raffangi.
Samkvæmt reglugerð nr. 946/1999 eru rafhlöður er flokkast sem spilliefni að notkun lokinni skilgreindar á eftirfarandi hátt:
- Rafhlöður sem innihalda meira en 0,0005% kvikasilfurs (Hg) miðað við þyngd.
- Rafhlöður sem innihalda meira en 0,025% kadmíums (Cd) miðað við þyngd.
- Rafhlöður sem innihalda meira en 0,4% blýs (Pb) miðað við þyngd.
Þessum rafhlöðum má skipta í tvo flokka: annars vegar einnota rafhlöður og hins vegar endurhlaðanlega rafgeyma.
Úrvinnslugjald er ýmist lagt á hvert stykki eða hvert kg.
Sjá nánar um fjárhæðir í lögum um úrvinnslugjald hér
