Hvernig get ég byrjað að endurvinna?

Skref 1

Það er í þínum höndum að ákveða hvaða úrgang þú ætlar að flokka og skila til endurvinnslu. Vel gæti reynst að byrja smátt en bæta svo smám saman við eftir því sem þú venst hugmyndinni.

Skref 2

Hér má finna upplýsingar um allar safnstöðvar á landinu. Hvar er þín safnstöð?

Skref 3

Nokkur fyrirtæki og sveitarfélög bjóða upp á flokkunartunnur fyrir endurvinnanlegan úrgang við heimahús. Þannig getur þú sparað þér sporin og látið sækja flokkaðan úrgang heim gegn vægu gjaldi. Skráðu hjá þér hvenær flokkunartunnurnar eru tæmdar í þínu sveitarfélagi.

Skref 4

Flokkun þarf ekki að taka mikið pláss og hún þarf ekki að kosta neitt. Dagblöðum og öðrum pappír má safna í pappakassa. Gosflöskur má setja í poka eða pappakassa. Þeir sem vilja geta keypt flokkunarkassa úr plasti sem hægt er að stafla upp og einnig fást flokkunarílát undir eldhúsvask. Endurvinnsla er í þínum höndum.



Efri Valmynd


Þetta vefsvæði byggir á Eplica